Um okkur 2018-11-19T13:21:44+00:00

SAGA LITLAPRENTS

Stofnun

Prentsmiðjuna Litlaprent stofnaði Guðjón Long árið 1967 og var tækjakosturinn ein trukkprentvél sem staðsett var í sumarbústað á Digraneshæð. Það er því óhætt að segja að prentsmiðjan hafi þá staðið fyllilega undir nafni. Árið 1973  kom Georg Guðjónsson inn í reksturinn og jukust umsvifin jafnt og þétt sem kallaði fljótt á nýtt húsnæði. Árið 1974 fluttist prentsmiðjan að Auðbrekku 48 og keypt var m.a. ein af fyrstu offsetprentvélum á Íslandi.

Litlaprent stækkar

Enn hélt Litlaprent áfram að vaxa. Árið 1985 flutti prentsmiðjan í nýtt 190 fm húsnæði að Nýbýlavegi 26. Þar urðu mikil umskipti í rekstrinum og synir Georgs, Birgir Már og Helgi Valur hófu störf hjá prentsmiðjunni, fjárfest var í nýjum offsetprentvélum ásamt prentvél til að framleiða samhangandi tölvupappír. Litlaprent stóð nú varla undir nafni því umsvifin jukust jafnt og þétt og þurfti að leigja húsnæði beggja vegna við prentsmiðjuna.

Kaup á 700 fm húsnæði

 Sumarið 1999 var ráðist í að kaupa 700 fm húsnæði undir prentsmiðjuna að Skemmuvegi 4 og fluttist prentsmiðjan þangað um haustið. Hafist var handa við að fjárfesta í nýjum og öflugum tækjum til að geta boðið viðskipavinum upp á enn fjölbreyttari og betri þjónustu.

Nýjar vélar

 Á árunum 2000–2007 bættust við fjölmargar nýjar vélar m.a. tvær fjöllita prentvélar, fullkominn forvinnslubúnaður, brotvélar, skurðarlína, hefti- og fræsilína, svo eitthvað sé nefnt. Samfara þessum vélakaupum var enn á ný þörf á stærra húsnæði og 500 fm keyptir til viðbótar að Skemmuvegi 4.

Fest kaup á Miðaprenti

 Árið 2012 er keyptur helmingshlutur í Miðaprenti ehf. sem sérhæfir sig í að framleiða m.a. vörulímmiða á rúllum fyrir matvælaiðnaðinn. Árið 2014 er Miðaprent flutt undir sama þak og Litlaprent að Skemmuvegi 4, það sama ár er jafnframt gengið frá kaupum að öllum hlutabréfum Miðaprents.

Til dagsins í dag

Í dag er Litlaprent og Miðaprent í um 2.000 fm húsnæði og státar af einum fullkomnasta og fjölbreyttasta tækjakosti allra prentsmiðja á landinu. Prentsmiðjan Litlaprent hefur alla tíð verið í eigu og rekstri sömu fjölskyldu og á einni kennitölu. Í dag sér Georg Guðjónsson um reksturinn ásamt sonum sínum þeim Birgi Má og Helga Val.
Hjá Litlaprenti og Miðaprenti starfar núna um 25 manna samheldinn hópur fólks sem leggur sig allan fram við að skila af sér vönduðu og góðu prent- og handverki.

1967
Litlaprent stofnað

Prentsmiðjuna Litlaprent stofnaði Guðjón Long árið 1967 og var tækjakosturinn ein trukkprentvél sem staðsett var í sumarbústað á Digraneshæð.

1974
Nýtt húsnæði

Árið 1974 fluttist prentsmiðjan að Auðbrekku 48 og keypt var m.a. ein af fyrstu offsetprentvélum á Íslandi.

1999
Litlaprent flytur á Skemmuveg 4

Sumarið 1999 var ráðist í að kaupa 700 fm húsnæði undir prentsmiðjuna að Skemmuvegi 4 og fluttist prentsmiðjan þangað um haustið.

2000
Nýjar vélar

Á árunum 2000–2007 bættust við  fjölmargar nýjar vélar m.a. tvær fjöllita prentvélar, fullkominn forvinnslubúnaður, brotvélar, skurðarlína, hefti- og fræsilína, svo eitthvað sé nefnt.

2012
Litlaprent kaupir Miðaprent

Árið 2012 er keyptur helmingshlutur í Miðaprent ehf. sem sérhæfir sig í að framleiða m.a. vörulímmiða á rúllum fyrir matvælaiðnaðinn.